Já sko mig, búin að breyta um útlit og er að skrifa blogg. Eitthvað sem ég hef ekki gert í marga mánuði.
Annars sýnist mér á öllu að facebook sé tekið við en ég er nú svo vitlaus að ég er ekki alveg að sjá tilganginn með facebook, jú þetta er rosalega sniðugt til að finna gamla vini. En allt þetta aukadót senda hinum og þessum blóm, pota í hinn og þennan og svo framvegis er ég ekki alveg að fatta en svona er maður bara vitlaus

Af okkur er allt gott að frétta Friggi er að vinna í Vinnslustöðinni eins og er, og vonum við að hann fái fastráðningu þar sem fyrst.
Það er alltaf nóg um að vera hjá mér, en samt hefur nú letin alveg látið á sér kræla síðustu mánuðina ég held að það stafi af sólarleysi og nú fer þetta að koma þar sem þessi gula er farin að tolla lengur uppi.
Ég þarf að fara til Reykjavíkur þann 13 mars n.k. og verð fram yfir helgi og ætla ég að reyna eftir bestu getu að kíkja á fólk sem ég hef ekki hitt í marga mánuði og suma í mörg ár. Var reyndar að pæla í að leigja sal og segja öllum að koma þangað þá þarf maður ekki að vera á endalausum þeyting, en ég læt mig nú hafa það. A.T.H. þeir sem ég kem ekki til sorry ég kem næst það er bara visst mikið sem maður getur afrekað á stuttum tíma

ég held ég byrji á Reykjanesinu í þessari ferð og færi mig svo upp í næstu ferðum

er það bara ekki ágætisplan?
Jæja ég er nú loksins búin að blogga smá og skemmtilegt fyrir þá sem kíkja hér reglulega inn að sjá eitthvað nýtt frá mér gaman að það sé ennþá til fólk sem einfaldlega nennir að kíkja á bloggið mitt því það hefur ekkert gerst á því í marga mánuði við það fólk vil ég einfaldlega segja Takk fyrir að halda trúnni á mig að ég muni blogga fyrr eða síðar

hehehehe
Kossar og knús
og munum að hugsa jákvætt
Alma